Nostr.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, tæknilegra mistaka og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Allar vörur eru sendar með Dropp.is. Ef óskað er eftir heimsendingu þarf að greiða mismuninn. Annars fer sendinginn á næsta afhendingarstað Dropp.is.
Nostr.is ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Nostr.is og þangað til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Vörur eru afgreiddar til sendingarþjónustu (Dropp.is) innan þriggja virkra daga nema Nafnspjöldin – þau taka 10-14 daga. Vilji svo til að varan sé ekki til á lager verður haft samband við við kaupanda og annað hvort tilkynnt um nýjan afhendingartíma eða endurgreiðslu á vörunni samdægurs.
Skilmálar teljast samþykktir við staðfestingu á kaupum í vefverslun.
Innifalið í verði vörunnar er 24% virðisaukaskattur. Nostr áskilur sér rétt til að breyta verðum fyrirvaralaust. Öll verð eru í íslenskum krónum. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Nostr áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni.
1. Millifærsla.
2. Kreditkort
Skilaréttur er 14 dagar frá útgáfudegi reiknings. Vöru þarf að skila gegn framvísun kvittunar. Viðskiptavinur fær inneignarnótu að sömu upphæð sem hægt er að nota á vefversluninni. Skilavörur þurfa að vera í sínu upprunalega ástandi og upprunalegar umbúðir þurfa að fylgja. Ef vara skemmist við sendingu þá vinsamlegast geymið pakkningarnar og látið okkur vita strax í netpósti á nostr@nostr.is. Útsöluvörum er ekki hægt að skipta nema í aðra útsöluvöru. Ef vöru er skilað eftir að útsala er hafin er miðað við útsöluverð vörunnar. Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keypt er á útsölu nema um annað er sérstaklega samið.
Alþjóðlegu kortafyrirtækin VISA, MasterCard og American Express hafa komið sér upp öryggisstaðli: PCI-DSS / Payment Card Industry Data Security Standard sem miðar að því að vernda kortaupplýsingar og lágmarka misnotkun þeirra. Við geymum engin kortanúmer og allar kortafærslur fara í gegnum vef Borgunnar hf. Allt greiðsluferlið er í samræmi við öryggiskröfur frá alþjóðlegum kortafyrirtækjum eða svokölluðum PCI-DSS staðli.
Knall ehf.
kt. 411216-0120
n. nostr@nostr.is
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila. Allir sem versla hjá okkur verða skráðir sjálfkrafa á póstlistann hjá okkur.